
Verkin mín eru handmótuð því mér finnst mikilvægt að gæða hvert og eitt þeirra lífi og sérstöðu. Hvert verk er einstakt, unnið af alúð og athygli.
Verkin eru ýmist brennd í rafmagnsofni eða rakúbrennd undir berum himni.
Þau eru á mörkum nytjahlutar og skúlptúrs og minna oft á lífverur eins og fugla, fiska og kynjadýr. Í verkunum bregður einnig fyrir áhrifum frá íslenskri náttúru og þjóðtrú.
Leirinn er mér heillandi efniviður, ekki aðeins vegna djúprar tengingar hans við sögu mannkyns, heldur einnig vegna þess hvernig hann sameinar frumkraftana fjóra, jörð, eld, loft og vatn, sem skipa stórt hlutverk í allri vinnu með leirinn.
My works are hand-moulded, as I believe it's important to give each piece its own life and individuality. Each work is unique and made with care and attention.
The works are either fired in an electric kiln or raku fired in the open air.
They're as much sculptures as they are functional items and are often reminiscent of creatures such as birds, fish and mythical beasts. The works also show influences from Icelandic nature and folklore.
I find clay a captivating material, not only because of its deep connections to mankind's history, but also because of how it combines the four elemental forces, earth, fire, air and water, that play an important role in all clay work.
